Háskólanemandi í vesturhluta Pennsylvaníu, fannst látin á heimavistinni sinni í skólanum sínum um helgina. Stúlkan, sem sögð er hafa verið mjög efnileg í körfuboltanum, var aðeins 21 árs og eru samnemendur hennar harmi slegnir vegna atburðarins.
Hún fannst, sem fyrr segir, í rúminu sínu en í fyrstu var ekki ljóst hvað hafði valdið andlátinu og var lögreglan auðvitað kölluð á staðinn. Stúlkan var svo krufin í gær og kom þá í ljós að hún hafði að öllum líkindum sofnað með tyggjó í munninum og það síðan farið ofan í lungun á henni og valdið köfnun.
Tengdar greinar: