Mamma og pabbi ég held ég sé……. – Myndband

Frá því sumarið 2003 hafa nokkrir hreyfihamlaðir einstaklingar tekið sig til og skapað sína eigin atvinnu. Fyrstu árin var verkefnið, sem fékk nafnið Götuhernaðurinn unnið í samstarfi við Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ og UFE (Ungt Fólk í Evrópu). Verkefnið tók að þróast næstu árin og er þetta árið eingöngu í samstarfi við Sjálfsbjörg.

Verkefnið hefur vakið verðskuldaða athygli. Fjallað hefur verið um það í öllum helstu fjölmiðlum landsins. Einnig hefur verkefnið verið tilnefnt til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins sem og hvatningarverðlauna Öryrkjabandalagsins.

Hægt er að fylgjast með á oryrki.is eða á Fésbókarsíðu verkefnisins.

SHARE