Þessi kaka er frábær þegar manni langar að baka eitthvað einfalt, fljótlegt og sjúklega gott. Uppskriftin er fengin af Eldhússögum.
Sjá einnig: Skyrkaka með karamellu, Nóakroppi & jarðarberjum
Mjúk og safarík ananaskaka
- 1 dós ananas (ca. 450 g)
- 4 egg
- 3 dl sykur
- 1 msk lyftiduft
- 2 tsk vanillusykur
- 100 g smjör, brætt
- 1 dl mjólk
- 1 dl safi frá ananasinum
- 5 ½ dl hveiti
- flórsykur til skrauts
Ofn hitaður í 200 gráður við undir- og yfirhita. Anansinn skorinn í minni bita og settur í sigti þannig að safinn renni af, ananassafanum haldið til haga. Egg og sykur hrært þar til létt og ljóst. Þá er lyftidufti, vanillusykri og hveiti bætt út í og hrært. Að lokum er mjólk, ananassafa bætt út í og hrært saman þar deigið verður slétt. Form (ca. 25×38 cm ) smurt að innan og deginu hellt í formið. Ananasbitarnir eru kreistir létt þannig að mesti safinn renni úr þeim og þeim stungið ofan í deigið með jöfnu millibili. Bakað í ofni í 20-25 mínútur eða þar til kakan er bökuð í gegn. Kökunni leyft að kólna dálítið í forminu og flórsykri dreift yfir kökuna áður en hún er borin fram.
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.