Nemendur hanna kubb sem lýsir skæru ljósi ef hann kemst í snertingu við nauðgunarlyf!

Nú stendur yfir nýsköpunarnámskeið í Háskólanum í Reykjavík. Námskeiðið felur í sér að nemendur finna viðskiptahugmynd og þróa hana áfram á meðan á námskeiðinu stendur.

Sex nemendur við Háskólann í Reykjavík hafa fundið upp ótrúlega sniðuga hugmynd. Hugmyndin er SafeCube. Hvað er SafeCube? SafeCube er lítill kubbur, úr plasi og  í laginu eins og ísmoli. Kubburinn greinir efnabreytinguna sem verður þegar nauðgunarlyfjum er smyglað í glös og gerir neytandanum viðvart með því að glóa skæru sjálflýsandi ljósi. SafeCube er því ekki bara ísmoli sem kælir drykkinn þinn heldur veitir hann þér einnig öruggara og áhyggjuminna skemmtanalíf.

Notkun nauðgunarlyfja er vaxandi vandamál um heim allan en við höfum öll orðið vör við fréttir af því að nauðgunarlyfjum sé byrlað í auknum mæli á skemmtistöðum hér á landi. Það hefur aldrei neinn komið með lausn við þessu nema bara þá að konur eigi að passa upp á glasið sitt, ekki líta af því og sjá þegar drykkurinn er blandaður, svo hann sé örugglega beint af barnum. Því ber þó að fagna að vissu leiti að hugmyndir séu að þróast þannig að konur geti verið enn öruggari með drykkina sína.

Auðvitað er sorglegt að vandamálið sé yfirhöfuð til og að konur þurfi alltaf að vera á varðbergi, en við getum ekki litið framhjá þessu vandamáli og því er þetta eitthvað sem gæti verið ágætisframför.

Síðu verkefnisins getur þú nálgast hér.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here