Þáttarstjórnandinn og ofurkvendið Oprah Winfrey lenti heldur betur í furðulegu atviku þegar hún hafði lokið viðtali sínu í þættinum The Late Show With Stephen Colbert. Oprah hafði verið að tala um þyngdarmissi sinn í þættinum, en eftir hann fór hún út, þar sem beið hennar ungur maður, sem var fremur aumkunarverður. Hann talaði um að Oprah hafði yfirgefið sig í æsku, en þegar hann var 11 ára hafði Oprah nokkurn veginn tekið hann að sér og greitt fyrir hann skólagöngu á sínum tíma.
Sjá einnig: Oprah Winfrey tjáir sig um dóttur Whitney Houston: ,,Það eru engin orð“
Calvin Mitchell (35) sagði að hann vildi tengjast Oprah aftur eftir 20 ára aðskilnað. Hún hafði á sínum tíma greitt fyrir hann tvo skóla, en hann var rekinn úr öðrum og hætti í hinum. Calvin segir að Oprah hafi eitt sinn beðið móður hans um að fá að ættleiða hann en þær fyrirætlanir ekki gengið eftir.
Oprah gengur út eftir upptökurnar á The Late Show With Stephen Colbert þegar Calvin kemur upp að henni og segir hana hafa yfirgefið sig.
Sjá einnig: Oprah Winfrey í gegnum árin – Myndir
Raunarlegur: Calvin Mitchell þráir að endurvekja samband hans og Oprah.
“Uss, nei… ég er ekki mamma þín…”
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.