Skán er heiti yfir gulbrúnt fitukennt hrúður sem myndast í hársverði ungbarna. Þetta ástand er hættulaust og varir ekki lengi. Mörg börn framleiða skán í hársverði á fyrstu vikum ævinnar. Það virðist ekki valda ungbarninu óþægindum.
Sjá einnig: Blóðnasir barna – hvað er til ráða?
Hvernig myndast skán?
Orsökin er óþekkt, en talið er að um eðlilegt lífeðlislegt fyrirbrigði sé að ræða.
Hvað einkennir skán?
Í hársverði ungbarna sést fitukennt gulbrúnt hrúður. Það getur jafnvel legið í þykkum lögum. Getur líkst vægu flösuexemi.
Sjá einnig: Krúttið talar „Ungbarnatungumál“
Holl ráð:
- losið hrúðurinn og fjarlægið hann, það eykur á vellíðan barnsins. Eftirfarandi ráð munu í flestum tilvikum hjálpa til, en oft þarf að leita frekari meðhöndlunar
- smyrjið hársvörðinn með jarðhnetuolíu eða sambærilegri olíu fyrir svefninn og greiðið hárið daginn eftir með fínni greiðu. Skolið síðan og mest af hreistrinu skolast burtu
- þetta gæti þurft að endurtaka nokkrum sinnum
- þegar skánin er horfin, má ef vill, þvo hárið með mildu barnasjampói.
Leitið læknis ef:
- Þessi ráð bera ekki tilætlaðan árangur.
- ef exemið hefur breiðst um andlit eða líkama t.d. á bleyjusvæði, nára eða í handakrika.
- ef sýking virðist vera til staðar; roði undir hrúðrinu eða vessi.
- barnið virðist hafa óþægindi af skáninni.