Staðreyndir sem koma á óvart um líkama karla

Kannski smá skrýtin en áhugaverð smáatriði um hans líkama.

Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að vera karlmaður. Núna þarft þú ekki að spá í því eða biðja hann um að útskýra fyrir þér afhverju hann fílar það meira “töff” í rúminu en þú gerir. Lestu bara áfram og þú færð vonandi svör við spurningum sem þú hefur hugsað um en aldrei spurt að.

Meðal limur í fullum skrúða er um 14 cm.

Samkvæmt Journal of Sexual Medicine. En þar var gerð könnun og tóku 1.661 karlmaður þátt og voru limir þeirra mældir. Minnsti limurinn var 4 cm á meðan sá stærsti var 26 cm.

Munnmök gera hann stærri.

Í þessari sömu könnun kom fram að þeir karlmenn sem höfðu fengið munnmök áður en þeir mældu lim sinn, þá mældist hann lengri.

Hans geirvörtur eru jafn næmar og á konum.

Fæstar konur vita þetta, en geirvörtur á karlmönnum eru jafn næmar og á konum. Þannig að ekki vera feimin við að narta í þær þegar þið eruð að elskast.

Karlmenn eru líka með G-blett.

Blöðruhálskirtilinn er G-blettur karlmannsins, því ef hann er örvaður þá getur karlmaður fengið fullnægingu. Örva má einnig svæðið sem er á milli pungs og endaþarms. Það gefur kraftmikla fullnægingu fyrir karlmenn.

Forhúðin hans hefur tilfinningar.

Um 44% af karlmönnum eru ekki umskornir. Gott er að nudda forhúðina með fingrum eða tungunni og byrja þannig heitan ástarleik.

Húðin á karlmönnum er þykkari en hjá konum.

Það fer eftir líkamshluta á karlmönnum hvar húðin er þykk. En hún er um 0,2 mm þykkari en hjá konum. Svo ekki vera feimin að taka aðeins á honum. Klóra eða klípa létt í bakið er t.d eitthvað sem kryddar ástarleiki.

Eðlileg fullnæging hjá karlmönnum endist í um 6 sekúndur.

Hjá konum eru það 23 sekúndur. Við heppnar með það.

Hans pungur hangir lágt og það er ástæða fyrir því.

Eistun hanga fyrir neðan líkamann þar sem hitastigið er aðeins kaldara og tilvalið til sæðisframleiðslu.

Sem kona að þá hef ég stundum spáð í, hvernig ætli það sé að hlaupa með þetta “dót” milli fótanna ?

Heimildir: womenshealthmag.com 

Þýðing: Anna Birgis

Fleiri spennandi greinar tengdar heilsu er að finna á Heilsutorg.is

heilsutorg

SHARE