Samkennd er þýðing á enska orðinu „compassion”. „Self-compassion” er svo þýtt sem samkennd í eigin garð – samkennd sem þú beinir að sjálfri eða sjálfum þér. Við eigum nefnilega oft auðveldara með að sýna öðrum samkennd en okkur sjálfum.
Hvernig tjá stjörnumerkin samkennd? Hvaða stjörnumerki er með mestu samkenndina? Hér má sjá hvernig stjörnurnar sýna öðrum samkennd:
Krabbinn
22. júní — 22. júlí
Krabbinn er með stórt hjarta. Hann finnur til með öðrum á svo djúpan hátt að hann getur næstum tekið á sig tilfinningar þeirra. Hann er besti vinurinn til að gráta með – og sá sem man eftir þér löngu eftir að aðrir hafa gleymt.


