Stjörnuspá fyrir ágúst 2026 – Vogin

Ágúst er æðislegur mánuður. Það er sumar en samt farið að skyggja á kvöldin. Margir eru að takast á við ný verkefni, hvort sem það er í námi eða starfi. Hér er stjörnuspáin fyrir þennan komandi fallega mánuð.

Vogin
23. september – 22. október

Ágúst verður einstaklega skemmtilegur mánuður fyrir Vogina. Þú finnur að jafnvægið sem þú hefur verið að leita að síðustu mánuði er loksins að skila sér og það verður auðveldara að njóta lífsins án þess að velta öllum smáatriðum fyrir þér. Fólk sækir í félagsskap þinn og þú gætir endað í fleiri grillboðum, afmælum eða ferðalögum en þú hafðir gert ráð fyrir. Segðu já við nýjum upplifunum – þær gætu leitt til skemmtilegra kynna og ógleymanlegra minninga.

Ástarlífið fær rómantískan blæ. Ef þú ert í sambandi er þetta góður tími til að gera eitthvað óvænt saman, jafnvel einfalt kvöld undir berum himni getur orðið að fallegri minningu. Einhleyp Vog gæti kynnst manneskju sem vekur áhuga með húmor sínum og jákvæðni. Ekki vera hrædd/ur við að taka fyrsta skrefið.

Í vinnu og námi nýtur þú góðs af samvinnu. Hugmynd sem verður til í spjalli við samstarfsfélaga eða vin gæti reynst dýrmæt þegar líður á haustið. Fjármálin eru stöðug, þó freistingin til að dekra aðeins við sjálfan þig verði sterk.

Heilsan er góð og þú finnur fyrir meiri orku ef þú eyðir tíma úti í náttúrunni eða hreyfir þig með góðum félagsskap.

Lukkudagur: 16. ágúst.
Litur mánaðarins: Ljósbleikur.
Ráð mánaðarins: Ekki bíða eftir fullkomna augnablikinu – búðu það til sjálf/ur.