Stjörnuspá fyrir september 2026 – Bogmaðurinn

Skólarnir eru flestir byrjaðir og september mun vonandi fara um okkur blíðum höndum. Haustlitirnir og kvöldmyrkrið er svo fallegt á þessum tíma og kertaljós lífga upp á kvöldin okkar.

Hér er svo komin stjörnuspá fyrir september:

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Þú vilt út, Bogmaður. Úr rútínu, úr leiðindum og helst í næsta flug.

September gefur þér löngun til að víkka sjóndeildarhringinn. Það getur verið ferðalag, nám, nýtt áhugamál eða einfaldlega fólk sem hugsar öðruvísi en þú.

Fyrri hluti mánaðarins er góður til að skipuleggja. Ekki hoppa bara á fyrsta tækifærið – skoðaðu hvað hentar þér best.

Í vinnu getur þú fengið hugmynd sem aðrir skilja ekki strax. Ekki gefast upp. Þú sérð oft möguleikana áður en aðrir gera það.

Ástin verður léttari þegar þú hættir að greina hana of mikið. Ef þú ert í sambandi er gott að gera eitthvað fyrirvaralaust saman.

Ef þú ert einhleyp/ur gæti nýr aðili komið inn í líf þitt í gegnum ferðalag, nám eða félagslegt umhverfi.

Seinni hluti mánaðarins gæti einnig kallað fram ákveðna þrá eftir breytingum.

En mundu: þú þarft ekki alltaf að fara langt til að finna eitthvað nýtt.

Septemberboðskapurinn: Stundum er stærsta ævintýrið að sjá gamla lífið með nýjum augum.