Stjörnuspá fyrir september 2026 – Hrúturinn

Skólarnir eru flestir byrjaðir og september mun vonandi fara um okkur blíðum höndum. Haustlitirnir og kvöldmyrkrið er svo fallegt á þessum tíma og kertaljós lífga upp á kvöldin okkar.

Hér er svo komin stjörnuspá fyrir september:


Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

September byrjar með tilfinningu um að þú þurfir að ná betri tökum á hlutunum. Það er eins og þú sért búin/n að vera með of mörg verkefni, of margar hugmyndir og aðeins of marga flipa opna í höfðinu. Nú er kominn tími til að loka nokkrum þeirra.

Í vinnu eða námi getur þú fundið mikinn kraft þegar líður á mánuðinn. Þú þarft þó ekki að gera allt í einu. Þú ert líklegri til að ná árangri með því að velja eitt markmið og fylgja því eftir en að hlaupa af stað í fimm áttir.

Ástarsambönd verða áhugaverðari þegar líður á september. Þú vilt hreinskilni og ert ekki sérstaklega í stuði fyrir leiki eða óljós skilaboð. Ef þú ert í sambandi gæti komið upp samtal sem þú hefur frestað. Það gæti reynst miklu jákvæðara en þú óttast.

Fullt tungl í þínu eigin merki undir lok mánaðarins getur orðið ákveðinn vendipunktur. Þú sérð skýrar hvað þú vilt og, kannski enn mikilvægara, hvað þú vilt ekki lengur.

Og þegar Mars fer í Ljón undir lok mánaðarins verður sjálfstraustið enn meira. Þú ert ekki komin/n til að vera á hliðarlínunni.

Septemberboðskapurinn: Þú þarft ekki leyfi til að taka pláss.