Stjörnuspá fyrir september 2026 – Sporðdrekinn

Skólarnir eru flestir byrjaðir og september mun vonandi fara um okkur blíðum höndum. Haustlitirnir og kvöldmyrkrið er svo fallegt á þessum tíma og kertaljós lífga upp á kvöldin okkar.

Hér er svo komin stjörnuspá fyrir september:

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

September verður góður mánuður fyrir þig, Sporðdreki. Þegar Venus fer inn í merkið þitt í kringum 10. september verður aðdráttaraflið þitt enn meira.

Þú þarft ekki einu sinni að reyna sérstaklega. Fólk tekur eftir þér.

Ástin verður stórt þema. Ef þú ert í sambandi getur komið upp sterkari nánd og samtal um eitthvað sem hefur legið undir yfirborðinu. Þú vilt ekki lengur hálfsannleika.

Ef þú ert einhleyp/ur gæti komið inn manneskja sem vekur hjá þér miklu meiri áhuga en þú bjóst við.

En smá varúðarorð: ekki rugla saman sterkri efnafræði og raunverulegri samhæfni.

Í vinnu gæti verið eitthvað sem þú þarft að fara dýpra í. Þú hefur gott auga fyrir því sem aðrir sjá ekki og það getur orðið þér mikill styrkur.

Undir lok mánaðarins verður samskiptastíllinn þinn enn beinskeyttari þegar Merkúr færist inn í Sporðdrekann.

Þú gætir sagt eitthvað sem þú hefur lengi hugsað en aldrei þorað að segja.

Gerðu það!

Septemberboðskapurinn: Heiðarleiki þarf ekki að særa til að vera sannur.