Stjörnuspá fyrir september 2026 – Vogin

Skólarnir eru flestir byrjaðir og september mun vonandi fara um okkur blíðum höndum. Haustlitirnir og kvöldmyrkrið er svo fallegt á þessum tíma og kertaljós lífga upp á kvöldin okkar.

Hér er svo komin stjörnuspá fyrir september:

Vogin
23. september – 22. október

Það verður mikil áhersla á sambönd, samskipti og jafnvægi í september. Þú hefur kannski verið að reyna að halda friðinn aðeins of mikið undanfarið. Nú er kominn tími til að segja hvað þú vilt í raun.

Staða stjarnanna í kringum 10. september mun styrkja samskipti, samningaviðræður og hæfileikann til að sjá fleiri en eina hlið á máli.

Þú verður líka betri í að setja orð á það sem þú finnur.

Í ástinni er september mjög góður til að dýpka samband. Ef þú ert einhleyp/ur getur ný manneskja komið inn í líf þitt í gegnum vinnu, vini eða félagslegt umhverfi.

En ekki fara strax að hugsa: „Er þetta framtíðin?“ Leyfðu hlutunum að þróast.

Fjármálin geta líka orðið skýrari. Þú gætir loksins tekið ákvörðun um eitthvað sem þú hefur frestað vegna þess að þú vildir ekki velja á milli tveggja kosta.

Seinni hluti mánaðarins snýst meira um þig sjálfa/n.

Þú ert að læra að jafnvægi þýðir ekki að allir fái alltaf sitt. Stundum þýðir jafnvægi einfaldlega að þú hættir að gefa meira en þú hefur efni á.

Septemberboðskapurinn: Friður er ekki alltaf það sama og sátt.