Stormviðvörun – Suðaustanstormur S- og V-lands í dag

Photo by by alana sise

Búist er við að gangi í storm eða rok (vindhraða yfir 20 m/s) á S- og V-verðu landinu upp úr hádegi.

Veðurhorfur á landinu
Vaxandi suðaustanátt, 18-25 m/s S- og V-lands og talsverð rigning síðdegis, en hægari og slydda N- og A-lands undir kvöld. Búast við mikilli hálku víða um land. Veðrið nær hámarki SV-lands milli kl. 15 og 17 í dag, en gengur síðan niður. Snýst í suðvestanátt með skúrum í kvöld og gengur þá í storm við Breiðafjörð, Vestfirði, á Ströndum og NV-landi. Dregur úr vindi og kólnar með éljum V-til í nótt, en áfram hvassviðri NV-lands til morguns.

SHARE