Sýnir óunnar myndir af sér fyrir alla „hatarana“

Khloe Kardashian (31) hefur gaman að því að flagga fallegum vexti sínum þessa dagana en hún hefur verið mikið í ræktinni að undanförnu. Hún prýðir forsíðu Complex í ágúst/september blaðinu og þykir ansi kynþokkafull á þeim myndum.

khloe-kardashian-complex-august-september-spread-2__oPt

 

Khloe situr fyrir olíuborin og fín á þessum myndum, með nánast beran botninn.

khloe-kardashian-complex-august-september-2015-cover__oPtKhloe ákvað svo að birta „óunna“ mynd af sér í gær á Instagram þar sem hún hafði fengið nóg af neikvæðu röddunum á netinu:

khloe-kardashian-unretouched-photos__oPt

 

Þessi er fyrir ykkur sem setjið alltaf út á allt og getið ekki gefið mér neitt „kredit“ fyrir það hvað ég hef verið dugleg í ræktinni alla daga! Þessi til vinstri er óunnin mynd úr myndavélinni á tökudaginn. Þessi til hægri er unnin. Já húðin er slétt og skuggunum hefur fækkað en mér finnst ég samt líta mjög vel út á þeirri vinstri, með göllum og öllu. 🙊❤️💋 Hæ hatarar!!! Smellið á myndina ég veit þig langar það 😝”

 

Khloe segist þakka Kim Kardashian fyrir að hafa hvatt hana til að fara í þessa myndatöku.

khloe-kardashian-complex-august-september-spread-1__oPt

 

Hún segist hafa verið mjög hikandi en Kim hafi látið hana gera þetta og hún hafi fengið aukna trú á sjálfa sig.

 

 

khloe-kardashian-complex-august-september-spread-3__oPt

SHARE