Þetta skaltu hafa í huga við kaup á sólarvörn

Það virðist vera fastur liður á hverju sumri að í gang fari umræða um sólarvarnir. Hvaða sólarvarnir sé best að nota og hverjar eigi að forðast. Fólk getur því orðið ringlað þegar kemur að því að velja hina réttu vörnina. Úrvalið er allavega nógu mikið. Hér eru nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga við kaup á sólarvörn.

Kauptu breiðvirka vörn

Það er mikilvægt að vörnin veiti vernd gegn bæði UVA og UVB geislum sem geta skaðað húðina, flýtt fyrir öldrun og aukið líkur á sólbruna og húðkrabbameini. Sólarvörn sem ekki er breiðvirk getur ekki varið þig gegn þessum þáttum.

Vatnsheld vörn er ekki til

Það er ekki til neitt sem heitir vatns- eða svitaheld sólarvörn. Það er tæknilega ómögulegt. Sólvarvörn getur hins vegar hrint frá sér vatni en þá er mikilvægt að hún veiti jafn jafn mikla vörn (SPF) eftir 40 mínútur í vatni.

Haltu þig undir SPF 50

Þegar sólarvörn er sögð hafa SPF stuðul 70 er það líklega bara sölutrix. Ástæðan er einföld; SPF 15 verndar gegn 93 prósentum UVB geisla, SPF 30 verndar gegn 97 prósentum geisla og SPF 50 verndar gegn 98 prósentum geisla. Allt þar fyrir ofan bætir mjög litlu við þessa vernd. Húðsjúkdómalæknar mæla yfirleitt með því að fólki noti sólarvörn með SPF stuðli 30 til 50.

Varastu efnið oxybenzone

Það er mikilvægt að kynna sér innihaldsefni í sólarvörnum líkt öðrum vörum. Oxybenzone er virkt innihaldsefni sem finnst í mörgum ódýrari sólavörnum sem fást í stórmörkuðum. Þetta efni getur ert viðkvæma húð og valdið húðskemmdum í sólinni. Þá er jafnframt talið að oxybenzone dragi úr framleiðslu sáðfruma hjá körlum og geti aukið líkur á krabbameini. Leitaðu eftir sólarvörn sem inniheldur avobenzone sem virkar eins og oxybenzone en er ekki skaðlegt heilsunni.

Engin parben

Paraben er rotvarnarefni sem lengi hefur verið notað í snyrtivörur, en það getur meðal annars truflað hórmónabúskap líkamans og aukið vöxt krabbameinsfruma. Skaðsemi parabena hefur verið mikið í umræðunni síðustu ár og framleiðendur snyrtivara taka því gjarnan fram á umbúðum ef vörurnar eru lausar við efnið. Sé það hins vegar ekki tekið fram er mikilvægt að leita eftir innihaldsefnum eins og methylparaben, propylparaben og butylparaben sem yfirleitt eru talin upp síðustu í innihaldslýsingum. Forðist líka sólarvörn með A-vítamíni enda getur það skaðað húðina í sól.

Forðist vörn í úðaformi

Það að nota sólarvörn í úðaformi kemur vissulega í veg fyrir klístraðar hendur, enda er vörninni þá spreyjað beint úr brúsanum á húðina. En húðsjúkdómalæknar mæla gegn notkun hennar vegna þess hvað hún dreifist mikið. Stór hluti þess sem spreyjað er lendir ekki á húðinni og vörnin veitir minni vernd fyrir vikið.

 

Greinin birtist fyrst í amk, fylgiblaði Fréttatímans.

SHARE