Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin dagana 15.-17. ágúst – Vönduð og fjölbreytt tónlist

Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fjórða árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 15. -­‐ 17. Ágúst 2013. Gæran er lítil hátíð sem leggur áherslu á að bjóða upp á vandaða og fjölbreytta tónlist, ný og upprennandi bönd í bland við reyndari tónlistarmenn.

Undanfarin ár hefur mikill fjöldi tónlistarfólks spilað fyrir gesti Gærunnar. Í fyrra voru 56 hljómsveitir sem sóttu um og af þeim voru 20 valdar til að stíga á stokk. Í ár sóttu 62 hljómsveitir um og af þeim hafa 22 verið valdar til að spila fyrir gesti Gærunnar í Ágúst. Hljómsveitarlistinn í ár var tilkynntur á bæjarhátíðinni Lummudögum sem fóru fram á Sauðárkróki 29. og 30. júní.

Hljómsveitirnar eru í stafrófsröð:
Alchemia, Baggabandið, Bellstop, Blind Bargain, Contalgen Funeral, Dusty Miller, Funk That Shit, Greifarnir, Hymnalaya, Jónas Sig, Kontinuum, Sometime, Stafrænn Hákon, Steinsmiðjan, The Royal Slaves, The Vintage Caravan, The Wicked Strangers, Tilbury, Úlfur Úlfur, Ultra-­‐Mega Technobandið Stefán, Valdimar og XXXRottweiler Hundar.

Dagskrá hátíðarinnar teygir sig yfir þrjá daga. Sólóistakvöld er haldið á fimmtudeginum á skemmtistaðnum Mælifelli og tónleikarnir á föstudeginum og laugardeginum eru á aðalsvæði hátíðarinnar. Það er 18 ára aldurstakmark en yngri tónlistarunnendur eru velkomnir í fylgd með foreldri/forráðamanni, 12 ára og yngri fá frítt inn.

Miðasala er hafin á midi.is og kostar einungis 6.000kr inn á hátíðina.

SHARE