Veitingastaðurinn Thorvaldsen ætlar að lækka verðin á húsvíni sínu í sumar

Eigendur Thorvaldsen segjast hafa tekið eftir því að fólk er ekki að leyfa sér jafn mikið og áður. Fólk er ekki mikið að kaupa sér flösku af léttvíni með matnum sem eigendur segja skiljanlegt þar sem vín er dýrt. Kolbrún Ýr Árnadóttir einn af eingendum Thorvaldsen sá umræðu um þessi mál í fjölmiðlum og tók sig til og lækkaði verðið á víninu á veitingastað sínum:

“Allt kostar orðið svo mikið, síðan var verið að tala um þetta í fjölmiðlum um daginn að fólkið í landinu er að versla minna vín með matnum á veitingastöðum og ég ákvað bara að við á Thorvaldsen skyldum taka á skarið og hreinlega lækka verðið.”

Hvetur ríkisstjórn til að lækka gjöld og skatta:
“Við tökum á okkur rosa lækkun því ekki eru áfengisgjöldin að lækka og við vonumst auðvitað eftir því að nýja ríkistjórnin lækki gjöld og skatta en það verður bara að koma í ljós!” Segir Kolbrún og skellir upp úr!

Lækkuðu verðið á víni um 35%

“Við höfum lækkað verðið við og vonumst til að fólk fari nú að leyfa sér aðeins meira, það verður allt svo miklu skemmtilegra ef við leyfum okkur aðeins að lifa og njóta
flaskan var á 4500 kr og er núna á 2900 kr eða um 35% lækkun”

Kolbrún segir að salan hafi aukist nú í vikunni eftir að verðið á víni lækkaði og hún er dugleg að láta alla kúnna vita af verðlækkuninni. Kolbrún segir að nýja verðið sé komið til að vera.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here