Stjörnuspá fyrir maí 2025 – Vatnsberinn

Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.

Hér er stjörnuspáin fyrir maí:

Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar

Passaðu að þú takir ábyrgð í samböndum og að það sé fullkomið jafnvægi í þeim. Það geta orðið einhverskonar tafir í persónulegum samböndum, engin áföll, en það gætu orðið bið á betrumbætum á heimilinu.

Enn og aftur eru stjörnurnar að minna Vatnsberann á að taka ekki hlutum of alvarlega. Ef tölvan er með stæla við þig eða þú sendir póst á rangt netfang er ekkert annað að gera við því en að yppa öxlum og halda áfram. Ekki gera stórt mál úr engu.