Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.
Hér er stjörnuspáin fyrir maí:
Steingeitin
22. desember — 19. janúar
Í maí muntu leita inn á við og finna barnið innra með þér kæra Steingeit. Þú ert svo skapandi og verður að fá að tjá það á einhvern hátt og skyldur þínar mega ekki stoppa þig af í því eða koma í veg fyrir að þú hafir gaman.
Þú ÞARFT ekki á neinum að halda en það er nauðsynlegt að hlúa að gleðinni í samböndum og nánum tengslum. Athugaðu hvað það er í raun og veru sem gefur þér fyllingu í lífið þitt og leyfðu þér að gera stundum eitthvað skemmtilegt en ekki bara það sem er skynsamlegt.


