Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.
Hér er stjörnuspáin fyrir maí:
Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember
Losaðu þig við það sem þjónar þér ekki lengur og uppgötvaðu styrkleika sem þú hefur ekki veitt athygli fyrr en nú. Þú munt upplifa mikinn persónulegan þroska og þú munt stunda áhugamál þín af kappi.
Samböndin þín munu þurfa mikla athygli og það kann að vera að þú þurfir að endurhugsa ákveðin sambönd og/eða samskipti. Tjáðu þig hreinskilnislega og segðu hvað þú vilt og þarft til að forðast allan misskilning við ástvini þína.


