Stjörnuspá fyrir apríl 2025 – Steingeitin

Apríl er mánuðurinn þar sem allt fer að lifna við og maður finnur að náttúran er að taka stakkaskiptum. Páskarnir og fermingar eru framundan og fólk hittir fjölskyldur og ættingja og þá er tilvalið að njóta.

Steingeitin (22. desember – 19. janúar)

Þú finnur fyrir þörf til að leggja traustan grunn að framtíðinni. Vinnan gengur vel ef þú sýnir aga og útsjónarsemi. Ástarsambönd krefjast samræðna og skuldbindinga.

Fjárhagslega geturðu tekið aðeins skynsamlegri ákvarðanir sem hafa jákvæð langtímaáhrif.