Apríl er mánuðurinn þar sem allt fer að lifna við og maður finnur að náttúran er að taka stakkaskiptum. Páskarnir og fermingar eru framundan og fólk hittir fjölskyldur og ættingja og þá er tilvalið að njóta.
Fiskurinn
19. febrúar – 20. mars
Apríl snýst um sjálfsvirði og öryggi fyrir þig kæri Fiskur. Þú ert að átta þig á því hvað skiptir þig raunverulega máli í þessu lífi – og hvað ekki.
Í vinnu gæti tækifæri komið til að sýna hæfileika sem þú hefur haldið aðeins fyrir þig. Ekki vera hrædd/ur við að stíga fram og sýna hvað í þér býr.
Ástarlífið krefst heiðarleika. Ef þú ert í sambandi er þetta góður tími til að ræða þarfir beggja aðila og vera opin/n í tjáningunni. Ef þú ert á lausu gæti einhver sem sér þig eins og þú ert vakið sérstaka athygli þína.
Fjárhagslega er þetta góður tími til að setja markmið og halda þig við það.
Lykilorð mánaðarins: Virði. Þegar þú metur sjálfa/n þig breytist allt annað líka.


