
Þessi dásamlega girnilega uppskrift kemur frá Eldhússystrum.
Norsku kanilsnúðarnir hennar Unnar
– ATH: Ég gerði bara eplasnúða úr einum þriðja af deiginu (ég skipti því semsagt í þrjá jafnstóra hluta), ef þið viljið gera eplasnúða úr allri uppskriftinni þurfið þið að þrefalda fyllinguna (eða minnka hana). –
150 gr kalt smjör
6 dl mjólk
2 egg
75 gr ferskt ger (7,5 tsk eða 22,5 gr þurrger)
2 dl sykur
1/2 tsk salt
1 tsk kardimommukrydd
1 kg hveiti
Fylling
Smjör, mjúkt(magn er smekksatriði – má líka sleppa)
Kanilsykur (magn er smekksatriði)
Eitt epli, afhýtt og skorið í litla bita
Karamellusósa (ég notaði karamelluísósu sem ég átti í skápnum, metnaðarfullir geta gert sína eigin ef þeir eru í stuði )
Glassúr
60 gr flórsykur
2 msk mjólk
1 msk karamellusósa
Öllum þurrefnum blandað saman. Smjörið mulið saman við. Eggin slegin í sundur og blandað saman við mjólkina. Gerið leyst upp í eggjamjólkublöndunni (eða þurrgerið ef því er að skipta, það mætti líka setja þurrgerið beint út í hveitiblönduna og blanda ásamt hinum þurrefnunum) og henni svo hrært saman við þurrefnin. Hnoðað vel (í höndum eða í hrærivél). Látið lyfta sér í ca. klst. Deiginu er svo skipt í þrjá jafnstóra hluta.

Flatt út í ferhyrning, smjöri dreift yfir og kanilsykri stráð yfir, eplabitunum stráð yfir og að lokum er dálítilli karamellusósu dreift yfir. Deiginu er svo rúllað upp og skorið í bita. Sett í ferhyrnt sæmilega stórt eldfast mót og látið lyfta sér aftur í ca. hálftíma. Bakað við 180 gr. þar til gullinbrúnir.

Glassúrinn er búinn til með því að blanda öllu saman og hella yfir snúðana þegar þeir eru tilbúnir og ennþá heitir.














