Stjörnuspá fyrir apríl 2026 – Sporðdrekinn

Apríl er mánuðurinn þar sem allt fer að lifna við og maður finnur að náttúran er að taka stakkaskiptum. Páskarnir og fermingar eru framundan og fólk hittir fjölskyldur og ættingja og þá er tilvalið að njóta.

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Apríl verður mánuðurinn sem færir þér fókus og ákveðni. Þú ert í skapi til að gera hluti almennilega – ekki bara hálfklára þá. Ef eitthvað hefur verið á verkefnalistanum þínum lengi þá gæti þetta verið mánuðurinn sem þú loksins hakar við það.

Í vinnu getur þetta þýtt aukna ábyrgð eða verkefni sem krefjast djúprar einbeitingar. Þú ert sérstaklega góð/ur í að kafa djúpt og finna lausnir sem aðrir sjá ekki strax. Samstarfsfólk gæti leitað til þín þegar hlutirnir verða flóknir.

Heilsan og daglegar venjur gætu líka fengið meiri athygli. Kannski ákveðurðu að breyta einhverju litlu sem hefur stór áhrif til lengri tíma – eins og svefni, hreyfingu eða matarvenjum.

Það verður mikil ástríða í ástarmálunum sem getur verið krefjandi, en á jákvæðan hátt. Ef þú ert í sambandi gætu djúpar samræður styrkt tengslin. Ef þú ert á lausu gæti einhver sem er bæði dularfullur og heillandi komið inn í líf þitt.

Fjárhagslega er þetta góður tími til að skipuleggja og hugsa til lengri tíma.

Lykilorð mánaðarins: Ákveðni. Þegar þú einbeitir þér að markmiði er fátt sem stoppar þig.