Stjörnuspá fyrir apríl 2026 – Vatnsberinn

Apríl er mánuðurinn þar sem allt fer að lifna við og maður finnur að náttúran er að taka stakkaskiptum. Páskarnir og fermingar eru framundan og fólk hittir fjölskyldur og ættingja og þá er tilvalið að njóta.

Vatnsberinn
20. janúar – 18. febrúar

Apríl verður hraður og fullur af hugmyndum kæri Vatnsberi. Samtöl, tengsl og nýjar hugmyndir geta komið hvaðan sem er – og sum þeirra gætu haft meiri áhrif en þú heldur.

Í vinnu er þetta góður tími til að kynna hugmyndir eða taka þátt í verkefnum sem krefjast nýsköpunar.

Ástarlífið getur verið óvænt og spennandi. Ef þú ert á lausu gæti tenging myndast í gegnum djúpar samræður. Ef þú ert í sambandi gæti nýtt sameiginlegt áhugamál styrkt tengslin.

Fjárhagslega er gott að halda góðri yfirsýn yfir það sem þú ert að eyða í og hvað þú VERÐUR að eyða í.

Lykilorð mánaðarins: Hugmyndir. Ein góð hugmynd getur opnað á óvænta möguleika.