Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Maí er mánuður tjáningar hjá þér kæri Tvíburi og nú er tími til kominn að tjá hugmyndir þínar með sjálfstrausti. Hafðu í huga að til þess að geta vaxið í starfi þarftu kannski að vera opin/n fyrir samstarfi við aðra. Aðlögunarhæfni er lykillinn að því að þú getir blómstrað innan um hvers kyns flækjur sem lífið hefur upp á að bjóða.

Þegar kemur að heilsunni þinni þarftu að leggja megináherslu á að viðhalda orkunni þinni. Örvaðu huga þinn með nýjum áhugamálum eða námskeiði til að koma í veg fyrir að staðna andlega. Vertu skynsöm/samur þegar kemur að fjárfestingum og ráðfærðu þig við einhvern sem hefur meira vit á fjármálum áður en þú tekur stórar ákvarðanir.