Stjörnuspá fyrir maí 2025 – Bogmaðurinn

Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.

Hér er stjörnuspáin fyrir maí:

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Þú hefur mikið verið að hugsa um hvaða áhrif orðin þín hafa og á sama tíma hvaða áhrif orð annarra hafa á þig. Það hefur látið þig sjá hvað þú þarft að gera til þroskast og sleppa tökunum. Æfðu þig í að hugsa jákvætt og segja hvetjandi hluti, við þig og aðra.

Þú ert full/ur af orku og eldmóð í maí. Þetta verður líka góður mánuður í ástarmálunum. Taktu samt eftir því að þú ert alltaf með annað augað á hurðinni, tilbúin/n að flýja ef þú verður hrædd/ur um að þér verði hafnað.