Stjörnuspá fyrir maí 2025 – Fiskurinn

Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.

Hér er stjörnuspáin fyrir maí:

Fiskurinn
19. febrúar — 20. mars

Þú verður undir miklu álagi í vinnu fyrrihluta maímánaðar elskulegi Fiskur. Passaðu upp á hvernig samskiptin eru við þá sem vinna með þér svo þú lendir ekki í útistöðum á vinnustaðnum. Ekki missa „kúlið“, vertu þolinmóð/ur og stefndu að markmiðum þínum.

Einn af þínum bestu kostum er hvað þú ert áhugasöm/samur um aðra og finnst þú verða margs vísari með því að spjalla við fólk. Haltu því áfram!!