Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.
Hér er stjörnuspáin fyrir maí:
Krabbinn
22. júní — 22. júlí
Það getur komið tímapunktur hjá þér þar sem þig langar að fara aftur inn í skelina þína, verandi skeldýr, en þá þarftu bara að minna þig á markmiðin þín og vonir og þrár. Mundu að þú átt allt það besta skilið.
Vertu með heilsuna í fyrirrúmi og fylgstu með minnstu merkjum um kulnun. Ekki hika við að leita til þeirra sem standa þér næst ef þú þarft á stuðningi að halda og vertu í kringum fólk sem skilur þig og lyftir þér upp


