Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.
Hér er stjörnuspáin fyrir maí:
Ljónið
23. júlí — 22. ágúst
Þú ert þekkt/ur fyrir einstaka, frábrugðna nálgun þegar kemur að ást og samböndum. Það er ekkert að því, en hefurðu velt fyrir þér hvers vegna? Þú munt komast að því í þessum mánuði. Þú þarft bara að setja egó-ið til hiðar og nota auðmýktina.
Sköpun er þinn ofurkraftur svo þú skalt nota hann. Það hljómar kannski eins og einhver klisja, en árangur snýst ekki bara um áfangastaðinn heldur um að njóta ferðalagsins, en þú átt það til að gleyma því.


