ll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.
Hér er stjörnuspáin fyrir maí:
Meyjan
23. ágúst — 22. september
Það verða einhverjar miklar framfarir á ýmsum sviðum lífs þíns í maí kæra Meyja. Þú munt eiga auðvelt með samskipti og ganga vel með hverskyns viðskipti. Þú hefur gott auga fyrir smáatriðum og það mun reynast þér afar vel í vinnunni um þessar mundir.
Um miðjan mánuð muntu finna sjálfstraustið aukast og þú færð jákvæðara viðhorf til lífsins. Reyndu að forðast að lenda í ágreiningi og rifrildum og sýndu öðrum virðingu.


