Stjörnuspá fyrir maí 2025 – Nautið

Við finnum öll að harðasti veturinn er að klárast og bráin er tekin að lyftast töluvert. Bjartasti tími ársins er framundan og því ber að fagna.

Hér er stjörnuspáin fyrir maí:

Nautið
20. apríl – 20. maí

Tímabil Nautsins stendur nú yfir og þú finnur fyrir þörf til að hægja á þér og meta stöðuna. Öll vandamálin sem þú hefur staðið frammi fyrir í sambandinu þínu í langan tíma munu loksins byrja að lagast í þessum mánuði.

Þú ert vinsæl/l um þessar mundir, átt mikið af vinum og fólki í kringum þig og ef þú ert einhleyp/ur gætirðu fundið ástina.