Alltaf virðist febrúar MIKLU styttri en aðrir mánuðir og miklu fljótari að líða en allir hinir mánuðirnir. Það munar auðvitað ekki mörgum dögum en einhverra hluta vegna kemur það oft aftan að manni að febrúar sé á enda.
Hér eru spár fyrir öll stjörnumerkin fyrir komandi marsmánuð:
Hrúturinn
21. mars – 19. apríl
Þú verður með fiðring í maganum í byrjun mánaðarins. Þú finnur að eitthvað er að vakna innra með þér. Það gæti verið ný hugmynd, nýtt verkefni eða bara ný útgáfa af sjálfri/um þér. Mars er þinn tími, enda sólin að færast í þitt merki undir lok mánaðar. Þú verður eins og sími á 5% hleðslu sem allt í einu fær hraðhleðslu.
Í vinnu og námi skaltu treysta innsæinu. Þú ert fljót/ur að taka ákvarðanir – en mundu að það er ekki sniðugt að taka allar ákvarðanir á „núll-einni“. Teldu upp að fimm. Það gæti bjargað þér frá því að senda „reply all“ tölvupóst.
Á ástarsviðinu gæti komið smá krydd. Ef þú ert á lausu gæti einhver heillandi einstaklingur komið óvænt inn í líf þitt – líklega í aðstæðum þar sem þú varst alls ekki á þeim buxunum að finna einhvern. Ef þú ert í sambandi er kominn tími á smá ævintýri saman, jafnvel bara nýr veitingastaður eða skyndilegt ferðalag.
Fjárhagslega er þetta góður mánuður til að skipuleggja. Þú þarft ekki að verða bókari ársins, en smá Excel-skjal getur gert kraftaverk.
Lykilorð mánaðarins: Frumkvæði. Þú ert ekki hér til að bíða eftir grænu ljósi – þú ert græna ljósið.


