Alltaf virðist febrúar MIKLU styttri en aðrir mánuðir og miklu fljótari að líða en allir hinir mánuðirnir. Það munar auðvitað ekki mörgum dögum en einhverra hluta vegna kemur það oft aftan að manni að febrúar sé á enda.
Hér eru spár fyrir öll stjörnumerkin fyrir komandi marsmánuð:
Krabbinn
21. júní – 22. júlí
Mars færir þér meiri metnað en venjulega. Þú finnur að þú vilt láta taka þig alvarlega – og það er kominn tími til. Þú hefur verið að byggja upp styrk í rólegheitum og nú fer það að sjást.
Í vinnu gætir þú farið að taka ábyrgð á nýju verkefni. Ekki efast um sjálfa/n þig – þú ert tilbúin/n. Þú þarft ekki að vera harður/hörð til að vera sterk/ur.
Það verða miklar tilfinningar á sviði ástarinnar í þessum mánuði, á góðan hátt. Opnar og einlægar samræður dýpka tengsl. Ef þú ert á lausu skaltu treysta hjartanu frekar en að leita að ókostunum.
Heima fyrir langar þig að gera notalegra í kringum þig – kannski færa húsgögn, kaupa plöntu eða baka eitthvað sem minnir þig á æskuna.
Lykilorð mánaðarins: Sjálfstraust. Þú ert sterkari en þú heldur.


