Alltaf virðist febrúar MIKLU styttri en aðrir mánuðir og miklu fljótari að líða en allir hinir mánuðirnir. Það munar auðvitað ekki mörgum dögum en einhverra hluta vegna kemur það oft aftan að manni að febrúar sé á enda.
Hér eru spár fyrir öll stjörnumerkin fyrir komandi marsmánuð:
Ljónið
23. júlí – 22. ágúst
Mars kveikir á ævintýraþránni innra með þér. Þú vilt meira – meiri gleði, meiri spennu, meiri lit. Þetta er mánuður til að víkka sjóndeildarhringinn, hvort sem það er með því að fara í ferðalag, fara á námskeið eða finna þér nýtt áhugamál.
Í vinnu muntu láta ljós þitt skína. Fólk tekur eftir þér, svo þú ættir að nota sviðsljósið vel. Ekki bara til að fá hrós, heldur til að hvetja aðra.
Í ástarmálunum verður einhverskonar dramatík, en á skemmtilegan hátt. Rómantík með stóru R-i. Ef þú ert í sambandi skaltu skipuleggja eitthvað óvænt. Ef þú ert á lausu – vertu óhrædd/ur við að taka fyrsta skrefið.
Lykilorð mánaðarins: Djarfleiki. Lífið er svið – og þú kannt þitt hlutverk mjög vel.


