Stjörnuspá fyrir mars 2026 – Meyjan

Alltaf virðist febrúar MIKLU styttri en aðrir mánuðir og miklu fljótari að líða en allir hinir mánuðirnir. Það munar auðvitað ekki mörgum dögum en einhverra hluta vegna kemur það oft aftan að manni að febrúar sé á enda.

Hér eru spár fyrir öll stjörnumerkin fyrir komandi marsmánuð:

Meyjan
23. ágúst – 22. september

Marsmánuður mun snúast um dýpt. Þú ert að greina, skipuleggja og laga hluti sem aðrir sjá ekki einu sinni. Þetta er frábær tími til að hreinsa til – bæði í skúffum og í huga.

Í vinnu er nákvæmni þín gulls ígildi. Passaðu bara að verða ekki of gagnrýnin/n á sjálfa/n þig. „Nógu gott“ er stundum alveg nóg.

Þú þarft að passa að vera heiðarleg/ur þegar kemur að ástarmálunum. Segðu það sem þú ert búin/n halda í þér mjög lengi. Léttirinn verður mikill.

Lykilorð mánaðarins: Hreinsun. Út með það sem þjónar þér ekki lengur.