Alltaf virðist febrúar MIKLU styttri en aðrir mánuðir og miklu fljótari að líða en allir hinir mánuðirnir. Það munar auðvitað ekki mörgum dögum en einhverra hluta vegna kemur það oft aftan að manni að febrúar sé á enda.
Hér eru spár fyrir öll stjörnumerkin fyrir komandi marsmánuð:
Vogin
23. september – 22. október
Þessi mánuður mun snúast um sambönd, ekki bara ástarsambönd, heldur öll tengsl sem skipta þig máli. Sum tengsl dýpka, önnur breytast og önnur gætu jafnvel runnið sitt skeið. Það er allt í lagi. Þú átt fullt af góðu fólki í kringum þig.
Í vinnu eða námi er þetta mánuður þar sem samstarf getur opnað óvæntar dyr. Einhver gæti komið með hugmynd sem í fyrstu virðist „meh“ en þróast svo í eitthvað spennandi. Þú ert alltaf til í að miðla málum en passaðu að liggja ekki á þínum skoðunum til að halda friðinn.
Ástarlífið verður líflegt og ef þú ert á lausu gæti mars fært þér manneskju sem ögrar þér á góðan hátt – einhver sem er ekki alveg „þín týpa“ en kveikir samt neista. Ef þú ert í sambandi er þetta góður tími til að ræða framtíðarsýn, markmið og jafnvel drauma sem hafa legið í dvala. Smá dramatík gæti blossað upp um miðjan mánuð, en hún leysist með heiðarlegu samtali og kannski smá húmor.
Lykilorð mánaðarins: Skýrleiki í tengslum. Þú þarft ekki að vera allt fyrir alla – bara vera þú.


