Stjörnuspá fyrir nóvember 2023 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Þú finnur að þú þarft að taka þér frí frá ys og þys félagslífsins og kafa niður í smá sjálfsskoðun. Það er kominn tími til að takast á við myrku hliðarnar í sálartetri þínu, ótta þinn og gömul áföll. Eins og tré sem missir laufin sín getur þú losað þig við tilfinningalegar byrðar þínar. Taktu þátt í sálarróandi athöfnum, hugleiðslu og jóga. Haltu alltaf í vonina og trúna um að allt fari eins og það á að fara, þér í hag. Lærðu að meta litlu hlutina í lífinu eins og heimilisverkin og kaffibollann þinn. Notaðu góðu vörurnar eða stellið sem þú ert alltaf að „bíða eftir rétta tækifærinu“ til að nota. Þú átt að dekra við þig.