Stjörnuspá fyrir október 2025 – Hrúturinn

Það er kominn október gott fólk! Það er bara farið að nálgast jólin! Tíminn líður svo sannarlega hratt og það er komið að stjörnuspá októbermánaðar 2025.

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Það verða spennandi áskoranir í október hjá hrútnum, bæði í samböndum og vinnulega séð. Fyrstu verða tileinkaðar tengslum, persónulegum og faglegum. Þú finnur að fólk leitar til þín, en það krefst þess líka að þú lærir að hlusta og gefir eftir þegar þörf er á. Þetta er mánuður sem kennir þér jafnvægi milli sjálfstæðis og samstarfs.

Í ástarmálum er þetta tími til að dýpka sambönd. Ef þú ert í sambandi geturðu fundið að traustið verður sterkara og þú sérð betur hvers makinn þinn þarfnast. Ef þú ert einhleyp/ur gætu óvænt kynni vakið sterkar tilfinningar – sérstaklega ef viðkomandi býður þér upp á nýja sýn á lífið.

Á vinnusviðinu koma til þín ný tækifæri í gegnum samstarf. Þetta er frábær tími til að mynda tengslanet eða vinna með öðrum að sameiginlegu markmiði. Fjármál eru stöðug, en þú þarft að passa að eyða ekki í skyndiákvarðanir.

Heilsan er góð, en þú gætir fundið fyrir meiri þörf til að slaka á og finna leiðir til að losa streitu. Regluleg hreyfing og útivera henta vel.

Í lok mánaðarins finnurðu fyrir meira sjálfstrausti. Október kennir þér að samstarf getur gert þig sterkari, án þess að draga úr þinni eigin orku.