Stjörnuspá fyrir október 2025 – Bogmaðurinn

Það er kominn október gott fólk! Það er bara farið að nálgast jólin! Tíminn líður svo sannarlega hratt og það er komið að stjörnuspá októbermánaðar 2025.

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Bogmaðurinn fær ferska og ævintýralega orku í október 2025. Fyrstu tvær vikurnar eru mjög félagslegar, með áherslu á vináttu, tengslanetið og hópstarf. Þú munt líklega upplifa að nýjar dyr opnist í gegnum fólk sem þú hittir – og það getur jafnvel snúist bæði um vinnu og persónuleg mál. Ef þú ert að vinna að einhverju sköpunar- eða langtímaverkefni gætirðu fengið stuðning sem hjálpar þér að koma því lengra en þú bjóst við.

Ástarmálin verða litrík í október. Ef þú ert í sambandi verður meiri leikgleði og skemmtun í samskiptum og ef sambandið hefur verið stíft eða einhæft er þetta tíminn til að brjóta upp rútínuna. Ef þú ert einhleyp/ur er líklegt að þú hittir einhvern á ferðalögum, námskeiði eða í gegnum sameiginleg áhugamál. Það sem kveikir í þér núna er hugrekki og sjálfstæði annarra.

Starf og fjármál eru stöðug, en krefjast samt athygli. Þú gætir fundið fyrir þörf til að læra eitthvað nýtt eða fara á námskeið sem gæti styrkt sig í starfi. Fjárhagslega er best að forðast skyndiákvarðanir, sérstaklega ef þær tengjast ferðalögum eða stórum kaupum.

Heilsan er almennt góð, en þú gætir verið hvatvísari en venjulega. Gættu að því að hlusta á líkama þinn, sérstaklega ef þú ert að stunda íþróttir eða æfingar sem reyna á liði og vöðva. Hugur og líkami þurfa jafnvægi – og jafnvel þú, Bogmaðurinn, þarft stundum að hægja á þér.

Í lok mánaðarins finnurðu fyrir meiri kyrrð og innsæi. Það er eins og október sé að leiða þig inn í dýpri skilning á því hvað raunverulega skiptir máli.