Sumarið er loksins komið og sólin hefur skinið í flestum landshlutum, ég held að það sé alveg á hreinu. Það gerast töfrar í mannlífinu þegar sólin skín. Fólk á ferli allsstaðar, að vinna í kringum húsin sín, fara með dót á haugana, mála, fá sér ís, fara í sund, grilla og fá sér svalandi drykk. Það er allt bara MIKLU BETRA þegar sólin skín.
Krabbinn
22. júní – 22. júlí
Júní byrjar rólega hjá þér en undir lok mánaðarins þegar sólin færist í merkið þitt finnurðu orkuna vaxa innra með þér. Þetta verður mánuður þar sem þú hugsar meira um sjálfa/n þig og hvað þú þarft raunverulega til að líða vel.
Í vinnu gætirðu fengið meiri ábyrgð eða tekið stærra hlutverk en áður. Þú ert tilbúin/n í það – þó þú efist stundum um sjálfa/n þig. Innsæið þitt verður sterkt núna og það hjálpar þér að taka góðar ákvarðanir.
Fjölskylda og heimili verða mikilvæg. Þú gætir viljað eyða meiri tíma með fólkinu þínu eða gera heimilið notalegra. Sumarkvöld heima með fjölskyldunni gætu reynst dýrmætari en stærstu samkomurnar.
Það verða miklar tilfinnningar á sviði ástarinnar, á mjög fallegan hátt. Ef þú ert á lausu gæti einhver sem gefur þér sterka öryggistilfinningu vakið sérstaka athygli. Ef þú ert í sambandi getur þessi mánuður dýpkað tengslin.
Fjárhagslega er gott að hugsa til lengri tíma og passa að eyða ekki alltof miklum peningum fyrstu viku sumarsins.
Lykilorð mánaðarins: Nánd. Það sem skiptir mestu máli er fólkið sem fær þig til að líða eins og þú sért „heima“.


