Sumarið er loksins komið og sólin hefur skinið í flestum landshlutum, ég held að það sé alveg á hreinu. Það gerast töfrar í mannlífinu þegar sólin skín. Fólk á ferli allsstaðar, að vinna í kringum húsin sín, fara með dót á haugana, mála, fá sér ís, fara í sund, grilla og fá sér svalandi drykk. Það er allt bara MIKLU BETRA þegar sólin skín.
Meyjan
23. ágúst – 22. september
Júní færir þér þörf fyrir skipulag og jafnvægi, kæra Meyja. Á meðan sumarið gerir aðra svolítið ringlaða þá reynir þú að halda einhverri stjórn á hlutunum – eða allavega litakóða dagatalið.
Í vinnu verður þú mjög afkastamikil/l. Þú sérð smáatriðin sem aðrir missa af og það getur bjargað deginum oftar en einu sinni.
Á sviðum ástarinnar verða rólegheit og einlægni. Ef þú ert á lausu gæti tenging þróast hægt en örugglega. Ef þú ert í sambandi verður mikilvægt að gefa sér tíma saman án þess að vera alltaf að plana næsta verkefni. Njóta samverunnar og félagsskap hvors annars.
Fjárhagslega er þetta góður tími til að fara yfir sumarkostnað og skipulag. Farðu varlega í of mikil útgjöld í byrjun sumarsins.
Lykilorð mánaðarins: Jafnvægi. Þú þarft ekki að laga allt í einu.


