Það er að koma október gott fólk! Það er bara farið að nálgast jólin!
Tíminn líður svo sannarlega hratt og það er komið að stjörnuspá októbermánaðar 2026.
Steingeitin
22. desember — 19. janúar
Steingeitin fær mjög jarðbundinn október. Þú ert að hugsa um framtíðina og vilt hafa hlutina á hreinu.
Vinna og fjárhagur verða í brennidepli. Þú gætir verið að leggja grunn að einhverju sem skilar sér síðar, jafnvel þótt árangurinn sjáist ekki strax.
Í ástinni þarftu að passa að láta ekki ábyrgðina taka yfir allt. Þú getur verið mjög áreiðanleg/ur, en makinn þinn vill líka fá að sjá léttu hliðina á þér.
Einhleypir gætu hitt manneskju sem virðist í fyrstu ekkert sérstaklega „spennandi“ en verður sífellt áhugaverðari eftir því sem þið kynnist betur.
Heilsan batnar þegar þú setur meiri reglufestu í daglegt líf.
Ráð mánaðarins: Ekki gleyma að njóta þess sem þú ert búin/n að byggja upp.


