Stjörnuspá fyrir október 2026 – Meyjan

Það er að koma október gott fólk! Það er bara farið að nálgast jólin!

Tíminn líður svo sannarlega hratt og það er komið að stjörnuspá októbermánaðar 2026.

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Meyjan byrjar október með sterka þörf fyrir að koma skipulagi á hlutina. Þú sérð fljótt hvað þarf að laga og ert líkleg/ur til að taka til hendinni.

Þetta er góður mánuður fyrir vinnu, skipulag og fjárhagsmál. Verkefni sem hafa setið á hakanum gætu loksins komist í höfn.

Í ástinni þarftu þó að passa að greina ekki allt of mikið. Þú þarft ekki að greina hver einustu skilaboð sem þú færð og sérhver þögn þarf ekki að þýða eitthvað. Stundum er fólk bara upptekið.

Einhleypir gætu kynnst einhverjum í gegnum vinnu eða sameiginlegt áhugamál. Fyrir þá sem eru í sambandi getur einföld samvera gert meira en stórkostlegar rómantískar yfirlýsingar.

Ráð mánaðarins: Ekki laga vandamál sem eru ekki til staðar.