Stjörnuspá fyrir október 2026 – Vogin

Það er að koma október gott fólk! Það er bara farið að nálgast jólin!

Tíminn líður svo sannarlega hratt og það er komið að stjörnuspá októbermánaðar 2026.

Vogin
23. september — 22. október

Október verður sérstaklega áhugaverður fyrir Vogina. Þú ferð inn í mánuðinn með meiri skýrleika um hvað þú vilt – sérstaklega í samskiptum og samböndum.

Þú hefur kannski verið að reyna að halda friðinn aðeins of lengi. Nú kemur að því að segja sannleikann, en gera það með þeirri kurteisi sem þú ert þekkt/ur fyrir.

Ástin verður stórt málefni. Einhleypir gætu fengið fleiri en einn möguleika og þurfa að ákveða hvað þeim finnst raunverulega spennandi. Þeir sem eru í sambandi gætu tekið næsta skref eða átt mikilvægt samtal um framtíðina.

Í vinnu er gott að treysta eigin dómgreind. Ekki láta óákveðni annarra smitast yfir á þig.

Ráð mánaðarins: Þú mátt velja það sem gerir þig hamingjusama/n.