Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Hrúturinn

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Þú byrjar nóvember með tilfinninguna um að þú þurfir að taka aðeins til í huganum. Kannski hefurðu verið að hugsa of mikið um eitthvað sem þú getur í raun ekki stjórnað. Nú er tíminn til að sleppa tökunum og einbeita þér að því sem þú getur gert.

Í ástinni gæti gamalt mál komið aftur upp á yfirborðið. Ekki endilega til að skapa vandræði heldur til að gefa þér tækifæri til að klára það almennilega. Einlægt samtal getur gert meira en löng þögn.

Í vinnunni verður þú sérstaklega drífandi seinni hluta mánaðarins. Þú færð aftur trú á eigin hugmyndum og gætir jafnvel ákveðið að hætta að bíða eftir samþykki annarra.

Nóvemberráð: Ekki eyða orkunni í að sannfæra fólk sem vill ekki hlusta