Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Nautið

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Nautið
20. apríl – 20. maí

Nóvember snýst að miklu leyti um sambönd fyrir Nautið. Þú gætir farið að sjá ákveðna manneskju í nýju ljósi eða áttað þig á því hvað þú vilt raunverulega fá út úr ákveðnu sambandi.

Ef þú ert í sambandi er gott að tala um framtíðina. Ekki bara praktísku hlutina heldur líka draumana. Hvað langar ykkur að gera saman næstu árin?

Fjárhagslega þarftu að fara aðeins varlega í byrjun mánaðarins. Ekki kaupa eitthvað bara vegna þess að þú átt skilið að dekra við þig. Þú átt það vissulega skilið – en kannski ekki einmitt þetta!

Seinni hluti mánaðarins verður rólegri og þú finnur meiri stöðugleika.

Nóvemberráð: Það er allt í lagi að skipta um skoðun.