Stjörnuspá fyrir nóvember 2026 – Ljónið

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Þú færð meiri kraft eftir því sem líður á nóvember. Þú gætir hafa verið óvenju gagnrýninn á sjálfan þig undanfarið en nú ferðu aftur að sjá það sem þú ert góður í.

Vinnulega er þetta góður mánuður til að koma hugmynd á framfæri. Ekki bíða eftir fullkomnu augnablikinu. Það kemur líklega aldrei.

Í ástinni verður þú heillandi og ákveðinn, en passaðu að láta hinn aðilann líka fá að ráða ferðinni. Ástin er ekki keppni.

Seinni hluti mánaðarins getur komið með skemmtilegt boð eða tækifæri sem þú ættir ekki að hafna bara vegna þess að það passar ekki alveg inn í planið.

Nóvemberráð: Smá sjálfstraust er gott. Of mikið sjálfstraust er samt ennþá verra en of lítið.