Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Tvíburinn
21. maí – 21. júní
Þetta er þinn mánuður, Tvíburi! Fullt tungl í merki þínu 24. nóvember setur þig í sviðsljósið og getur orðið vendipunktur í einhverju sem hefur verið að þróast síðustu vikur.
Fyrri hluti mánaðarins gæti þó verið svolítið ruglingslegur. Þú gætir sagt eitt, meint annað og svo þurft að útskýra þriðja hlutinn. Taktu þér tíma áður en þú sendir skilaboðin.
Í ástinni verður samtal lykillinn. Ein manneskja gæti verið að bíða eftir því að þú segðir eitthvað sem þú hefur verið að halda inni.
Seinni hluti mánaðarins verður mun skemmtilegri. Boð, ferð, nýtt fólk eða óvænt tækifæri gætu komið upp.
Nóvemberráð: Segðu það sem þú meinar – áður en einhver annar túlkar það fyrir þig.


